Brúðulausar skemmtanir
Eigðu góða stund með okkur og hjálpaðu okkur að bjóða gestalistamenn, íslenska og erlenda, velkomna á fyrstu alþjóðlegu brúðulistahátíðina á Hvammstanga. Et, drekk og ver glaðr með gömlum vinum meðan þú kynnist nýjum og fræðist um viðburði hátíðarinnar. Allir eru velkomnir á þennan opnunarkvöldverð og ókeypis inn. Drykkjarföng og mat þarf þó hver að borga fyrir sig.
|
Hver hefur ekki gaman að lifandi tónlist? Vertu með okkur í blús og rokk -og norrænni stemningu með þessari ótrúlegu Lettnesku söngkonu og lagasmið sem býr og starfar á Íslandi.
|
Viðurkenningar verða veittar fyrir besta heildarverkið, valið af dómnefnd leikhúsfagmanna. Einnig verður áhorfendakosning. Að auki verður sérstök viðurkenning veitt fyrir „listáskorunina“. Þið getið búist við kampavíni, nasli, hlátri og sérstökum glaðningi.
|