Skuggar af skuggum
TANGRAM KOLLEKTIV
Könnunarleiðangur um heim skugganna fyrir alla fjögurra ára og eldri. Ferð um borg í álögum leiðir okkur að einstöku herbergi. Inni í herberginu er borð, lítið píanó, nokkrir hlutir og tvö vasaljós. Skuggarnir dansa sinn eigin tryllta frelsisdans. Þeir stækka og minnka, þeir skiptast í tvennt og renna saman - margfaldast jafnvel. Skuggar verða að líkömum, líkamar verða að skuggum og svo, í augnablik, er einveran ekki eins einmannaleg.
´Óður til ímyndunaraflsins. Tveir brúðuleikarar leiða okkur um óvæntar slóðir inn í töfraheim skugganna.´
Framleitt af TANGRAM Kollektiv í samvinnu við brúðuleikhúsið „Alte Fuhrhalterei“ í Osnabrück.
Copyright © 2020